Botnlanginn (appendix) er lítill, fingurlaga poki sem tengist görninni neðst hægra megin í kviðnum. Botnlangabólga (appendicitis) er þegar hann bólgnar og sýkist, oft vegna þess að eitthvað, til dæmis lítill, harður hægðamoli, stíflar opið á honum.
Hún er algengasta orsök skyndilegs kviðverkjar sem þarfnast skurðaðgerðar. Hún getur komið á hvaða aldri sem er, en er algengust hjá börnum yfir 10 ára aldri og ungu fólki, og sjaldgæf hjá ungbörnum yngri en 12 mánaða.
Botnlangabólga er bráðatilfelli: án meðferðar getur botnlanginn sprungið, sem getur leitt til alvarlegrar sýkingar inni í kviðarholinu. Ef hún er meðhöndluð fljótt ná flestir sér að fullu, og þú þarft ekki á botnlanganum að halda til að vera heilbrigð(ur).

